„Nú er kominn launaseðill fyrir næsta mánuð. Hækkunin er komin og afturvirk,“ segir Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, í færslu á Facebook-síðu sinni.
Björn segir að þetta þýði að útborguð laun, með leiðréttingunni eftir skatt, hljóði upp á 915 þúsund krónur. Heildarlaun fyrir skatt, með leiðréttingu, eru 1.518.069 krónur.
Laun þingmanna áttu að hækka um 6,3% um síðustu áramót en framkvæmd hækkunarinnar var frestað. Nokkuð hefur verið deilt um þessar hækkanir.
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, spurði Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra, nýlega að því hvort eðlilegt væri að þingmenn hækkuðu í launum á þessum tímum.
Þingflokkar Pírata, ásamt þingflokki Samfylkingarinnar og Flokks fólksins og Andrési Inga Jónssyni lögðu fram frumvarp á Alþingi á dögunum um að fella niður launahækkun þingmanna og ráðherra frá 1. janúar 2020. Lagt var til að launin yrðu leiðrétt þannig að öll afturvirk réttindi frá fyrsta janúar falli niður.
Í frétt Kjarnans frá því 8. apríl kom fram að laun þingmanna hefðu hækkað um tæpar 70 þúsund krónur á mánuði, í 1.170.569 krónur á mánuði. Þá hækkuðu laun forsætisráðherra um 127 þúsund krónur, í 1.149.200 krónur á mánuði.
Nú er kominn launaseðill fyrir næsta mánuð. Hækkunin er komin og afturvirk. Það þýðir útborguð laun með leiðréttingunni...
Posted by Björn Leví Gunnarsson on Fimmtudagur, 30. apríl 2020