Laun Dags: Það borgar sig að vera borgarstjóri

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur gefið það út að hann hyggist ekki bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar í haust.

Dagur hefur þó ekki útilokað að hann muni gera atlögu að því að komast í landsmálin að kjörtímabili loknu en næst verður kosið til Alþingis árið 2025. Í millitíðinni verður Dagur áfram í starfi borgarstjóra uns Einar Þorsteinsson tekur við á miðju kjörtímabili.

Dagur hefur það býsna gott sem borgarstjóri ef marka má álagningarskrá ríkisskattstjóra sem lögð var fram í gær.

Dagur er einn launahæsti stjórnmálamaður landsins og námu mánaðarlaun hans 3.082.538 krónum í fyrra. Aðeins Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Garðabæjar, var með hærri laun þó aðeins hafi munað þrettán þúsund krónum á þeim.

Fari Dagur í landsmálin gæti hann búist við því að launin muni lækka talsvert. Hann mun þó ekki lepja dauðann úr skel nái hann kjöri sem óbreyttur þingmaður. Strípað þingfararkaup alþingismanna frá 1. júlí síðastliðnum voru 1.345.582 krónur.