Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, er ekki par sáttur við fréttir af því að laun Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, sem er í meirihlutaeigu borgarbúa, hafi hækkað úr 2,7 milljónum á mánuði í 3,4 milljónir á mánuði í fyrra. Sérstaklega í ljósi þess að talað sé um að fara þurfi varlega í launahækkanir í komandi kjarasamningum.
Vilhjálmur segir að Bjarni sé ekki eini forstjórinn sem fái svona launahækkanir:
„Í Kjarnanum kom frétt 3. mars að meðallaun forstjóra þeirra 20 félaga sem skráð eru á aðalmarkað Kauphallar Íslands á síðasta ári hafi verið rúmlega 5,6 milljónir króna. Alls hækkuðu laun þeirra að meðaltali um 444 þúsund krónur á mánuði,“ segir hann á Facebook.
„Ég spyr núna hvar er Seðlabankastjóri, fjármálaráðherra og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins sem hafa að undanförnu öskrað í verkalýðshreyfinguna um að í komandi kjarasamningum verði að semja með hófstilltum hætti annars sé framundan óðaverðbólga og hækkandi vextir. Meira segja hafa þessir aðilar sagt að ekki sé tækt að greiða svokallaðan hagvaxtaauka upp á 10.500 kr. handa verkafólki sem tekur laun eftir launatöxtum.
Nei það heyrist aldrei neitt frá þessum aðilum þegar auðvalds snobbelítan skammtar sér launahækkanir sem nema hundruðum þúsund á á mánuði.“
Vilhjálmur segir ljóst að þessar fréttir að undanförnu um launahækkanir þeirra sem eru í efrilögum samfélagsins kalli á að verkalýðshreyfingin eigi kost annan en að sækja fram af fullum þunga til handa verka-og lágtekjufólki í komandi kjarasamningum. „Enda hefur yfirelítan sent skýr skilaboð um að nóg sé til skiptanna,“ segir hann.
„Það hefur greinilega gripið um sig taumlaus græðgi hjá hinum ýmsu stjórnendum í efrilögum samfélagsins, en við þá vil ég segja gleymið því að þetta muni ekki kalla á hörð viðbörgð verkafólks í komandi kjarasamningum. Veruleika firring ykkar er alger og ég fullyrði að almenningur í þessu landi hefur viðurstyggð á þessari græðgi ykkar.“