Lárus Guðmundsson, veitingamaður á Rossopomodoro, er harðorður í garð borgaryfirvalda í grein sem hann birti á Facebook í dag þar sem hann kallar meirihlutann í borginni þjóðarskömm.
Meðfylgjandi mynd birti hann með færslunni og segist hafa smellt af henni í gær, fimmtudaginn 10. september klukkan 12:02. Fullyrðir hann að 90 prósent rekstraraðila á Laugavegi hafi margsinnis varað við gatnalokunum, þ.e. að loka fyrir umferð bíla.
„Nú er staðan þannig að hvert fyrirtæki af fætur öðru er að loka. Sumarborgin er orðin að hörmung. Borgarstjórinn kennir bara Covid um, en hvar sem ég kem td. Kringlan, Smáralind, Skeifan og Ármúli þar iðar allt af mannlífi þrátt fyrir Covid,“ skrifar Lárus.
„Helstu áhyggjur meirihlutans í dag var ónýta húsið sem var rifið á Skólavörðustígnum, sem er búið að vera til skammar í mörg ár. Nú spyr ég ykkur Reykvíkingar og aðrir landsmenn er hægt að láta koma svona fram við okkur,? Allt fólkið sem vann á Laugaveginum og nágrenni er í mörgum tilvikum fjölskyldufólk með börn á framfæri. Þetta er að mínu viti þjóðarskömm að hafa svona fólk við stjórn.“