Lárus á Rossopomodoro hefur fengið nóg: Hroki, yfir­gangur og lítils­virðing

Lárus Guð­munds­son, veitinga­maður á Rossopomodoro, er harð­orður í garð borgar­yfir­valda í grein sem hann skrifar í Morgun­blaðið í dag. Lárus hefur rekið veitinga­staðinn við Lauga­veg 40 síðast­liðin 14 ár en svo virðist sem hann sé búinn að fá sig full­saddan af götu­lokunum í mið­borginni.

„Núna í miðjum heims­far­aldri kórónu­veiru þrengir að mörgum rekstri, sér í lagi í hvers kyns þjónustu­starf­semi. Ég finn það á eigin skinni en ég hef undan­farin 14 ár rekið veitinga­staðinn Rossopomodoro á Lauga­vegi 40 og allan tímann á sömu kenni­tölu. Ég hef alltaf borgað mína skatta og skyldur skil­vís­lega og stöðu­gildi eru að jafnaði tólf til fimm­tán. Við sem rekum starf­semi í mið­bænum höfum þó þurft að eiga við annars konar far­aldur undan­farin átta ár, far­aldur sem birtist í lokunum gatna og sí­fellt meiri höftum á að­gengi að mið­bænum.“

Fólkið fælt frá

Lárus segir að þetta hafi gert það að verkum að Ís­lendingar sæki í miklu minna mæli í bæinn en áður.

„Þeir koma jafnan á sínum bíl en götu­lokanir hafa fælt stóran hluta þeirra frá því að koma í bæinn. Þannig hefur fólk kerfis­bundið verið vanið á að fara annað að sækja verslun og þjónustu.“

Lárus kveðst þekkja vel til í mið­bænum eftir 14 ára starf þar og þá segist hann vera í sam­bandi við fjöl­marga vini sína á svæðinu, veitinga­menn og kaup­menn. Hann full­yrðir að enginn þeirra sé hlynntur um­ræddum götu­lokunum og segir að borgar­yfir­völdum sé full­kunnugt um and­stöðu meiri­hluta rekstrar­aðila.

Ítrekað sýnd lítilsvirðing

„Hinir háu herrar í ráð­húsinu hafa þó kosið að skella skolla­eyrum við til­mælum okkar. Ekkert sam­ráð er við okkur haft og okkur í­trekað sýnd lítils­virðing af þeirra hálfu. Við höfum mátt þola hroka og yfir­gang. En það eru ekki bara lokanir sem spilla fyrir við­skiptum heldur tóku borgar­yfir­völd upp á því að snúa við aksturs­stefnu á Lauga­vegi milli Klappar­stígs og Frakka­stígs. Sú að­gerð gerir ekkert annað en ergja þá sem eiga erindi í bæinn og má jafna því við að götunni sé lokað.“

Lárus segir að það sé hægt að snúa vörn í sókn og það sé mikil­vægt nú sem aldrei fyrr þegar far­sóttin er í rénun. Hann leggur til að gripið verði til nokkurra að­gerða ekki seinna en strax.

„Af­nema allar götu­lokanir á Lauga­vegi, Skóla­vörðu­stíg og Banka­stræti. Snúa aftur við aksturs­stefnunni á Lauga­vegi milli Klappar­stígs og Frakka­stígs. Bjóða frítt í bíla­stæða­húsin í ná­grenninu fyrstu þrjár klukku­stundirnar. Hætta að inn­heimta bíla­stæða­gjöld og taka upp fram­rúðu­skífur þess í stað þannig að frítt verði að leggja, til dæmis frá 90 mínútum og upp í 180 mínútur eftir fjar­lægð frá Lauga­vegi. Borgin taki strax upp sam­ráð við Mið­bæjar­fé­lagið í Reykja­vík enda eru þar innan­dyra flest elstu og þekktustu fyrir­tækin á svæðinu sem gera það spennandi og eftir­sóknar­vert að koma í bæinn.“

Lárus segir að lokum að nú sé komið að ögur­stundu fyrir marga rekstrar­aðila og bregðast þurfi strax við ef ekki á illa að fara. „Meira en nóg er komið af götu­lokunum og öðrum höftum á að­gengi í bæinn!“