„Er að leita að lítilli tveggja herbergja íbúð til leigu til langs tíma en blöskrar verðlagið.“
Þetta segir fjölmiðlakonan Lára Ómarsdóttir í færslu á Facebook-síðu sinni.
„Hvernig má það vera að það kosti stundum meira en 300þ krónur á mánuði að leigja 50fm íbúð? Svo eru afar fáar íbúðir í boði hér í nágrenninu til lengri tíma en allt morandi í Airb&b íbúðum. Þannig nóg er til af húsnæði en bara ekki á almennum leigumarkaði,“ segir Lára og er óhætt að segja að margir taki undir með henni.
„Er líka að leita fyrir mig og verðið er klikkað,“ segir ein á meðan annar bætir við:
„Vinkona mín var að fá hækkun úr 250 upp í 300 þúsund, tekur gildi strax, sem ég held reyndar að standist ekki lög.“
Sjálf segist Lára telja að ástandið á leigumarkaði hafi versnað mikið. „Ég leigði sjálf þar til fyrir 3 árum og sé ekki betur en að leigan hafi hækkað umtalsvert síðan þá.“