Lára var á feðalagi um landið og hitti gamlan skjólstæðing: „Nú jókst forvitnin“

Læknirinn Lára G. Sigurðardóttir segir frá áhugaverðri ferðasögu í bakþönkum Fréttablaðsins í dag. Hún og maðurinn hennar voru að ferðast um landið og hittu fyrrverandi samstarfskonu Láru.

„Líkt og fleiri landsmenn lögðum við hjónin land undir fót um síðastliðna helgi. Í fyrsta stoppinu skammt frá höfuðborginni hitti ég fyrrverandi samstarfskonu og tókum við að spjalla.

Þá kemur maðurinn hennar aðvífandi og segir: „Já, ég veit hver þú ert, þú ert læknir.“ Þá segir konan: „Já, hún fékk þig til að hætta að reykja.“

Þegar þar var komið sögu hugsaði ég með mér að ég hefði þarna væntanlega náð að snúa manninum með hetjulegri ræðu.“

Þá segir Lára frá því hvernig þau rifjuðu upp hvernig það hafði skeð, en það var þegar maðurinn kom í heimsókn til Láru

„Til að rifja upp tilfellið sem var fallið í gleymsku spyr ég manninn hvernig það hafi atvikast. Þá verður hann vandræðalegur og konan reynir að snúa út úr með því að beina athyglinni annað. Nú jókst forvitnin og hvet ég manninn til frásagnar.

Þá segir hann án þess að líta upp: „Já, það kom nú til þannig, að ég kom fyrir mörgum árum á læknastofuna til þín með kvef.

Þú hlustaðir mig og þar sem ég reykti vildir þú taka lungnamynd. Þú hélst að ég væri kominn með lungnakrabbamein. Það var smá bras að taka myndina, hún heppnaðist ekki í fyrstu.

Seinni myndin var skýrari og þú horfðir á hana um stund og sagðir svo: „Þú ert með lítið hjarta.“ Ég spurði út í litla hjartað – hugsaði með mér hvort ég væri með öllu kjarklaus – og fékk þá skýringu að lítið væri gott, því það væri betra en stórt, allavega á röntgenmynd.“

Lára segir síðan hefi verið hlegið af þessari frásögn. En eftir þetta hafði maðurinn það ekki í sér að reykja sígarettur.

„Maðurinn með litla hjartað var fórnarlamb nýútskrifaðs læknis sem hafði séð of mikið af lungnakrabbameini og stækkuðum hjörtum á röntgenmyndum háskólaspítalans.

Eftir þessa lífsreynslu hafði maðurinn ekki þorað að snerta aftur sígarettu. Og ef hann lenti í krefjandi aðstæðum þá gat hann allavega svarað því til að læknir hefði staðfest að hann væri með lítið hjarta.“