Lára setur sér ekki lengur áramótaheit: „Ég varð ekkert hamingjusamari“

Lára G. Sigurðardóttir læknir er með skemmtilegustu pistlahöfundum landsins. Hún skrifar bakþanka Fréttablaðsins í dag þar sem hún skrifar um mál sem eru okkur jafnan hugleikin þegar nýtt ár gengur í garð, sjálf áramótaheitin og þankagang okkar.

Lára byrjar pistil sinn á að vísa í dagbókarskrif læknisins Leonid Rogozov árið 1961 þar sem hann var staddur í rússneskri bækistöð á Suðurskautslandinu.

„Verkurinn særir líkt og djöfullinn! Snjóstormur nístir í gegnum sálu mína. Ég er við það að bugast … en get ekki lagst í kör og gefist upp. Eina leiðin úr þjáningunni er að skera sjálfan mig upp.“

Lára segir að vegna óveðurs hafi ekki reynst unnt að flytja hann á sjúkrahús og var hann eini læknirinn á svæðinu. Skemmst er frá því að segja að Leonid fjarlægði eigin botnlanga og kannski sem betur fer. „Botnlanginn var svo sýktur að hefði hann hikað væri hann ekki til frásagnar,“ segir Lára.

Hún bendir á að í upphafi árs sé hugur í mönnum.

„Samkvæmt könnunum setur um helmingur fólks sér áramótaheit. Mæta í ræktina, minnka mittismálið eða meika’ða. Drekka minna. Læra og leika sér meira. Lifa lífinu! Sjálf er ég hætt að setja mér áramótaheit. Ég varð ekkert hamingjusamari þótt ég kæmist í betra form og svo varð ég bara fúl út í sjálfa mig þegar heitin runnu út í sandinn. Samt finnst mér gott að horfa um öxl og endurskoða líf mitt. Hverju vil ég minna af – og hverju meira? Hvernig mun það bæta líf mitt?“

Lára segir að í hugarheimi séu fáar hindranir, nema neikvæðar hugsanir, sem letja okkur.

„Þegar svo er í kot komið gæti verið ráð að minnast þess að við erum ekki hugsanir okkar, þær spretta frá líffræðilegum ferlum en ekki sálartetrinu. Við getum hins vegar hugsað um þankagang okkar og valið að einblína á suma þanka, en gefa öðrum minni gaum.“

Pistilinn endar Lára á þessum orðum:

„Leonid gekk ákveðinn til verks án þess að véfengja getu sína og sýndi okkur hinum hvers hugurinn er megnugur. Málið er bara að átta sig á hvað það er sem bætir lífið – og gera meira af því.“