Lára G. Sigurðardóttir, læknir og einn vinsælasti pistlahöfundur landsins, sendir karlmönnum skýr skilaboð í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.
Þar fjallar hún um þá miklu ábyrgð sem fylgir því að eiga barn og lífsstíl kvenna annars vegar og karla hins vegar þegar kemur að því að reyna að eignast barn. Vitnar hún í gullna setningu sem vinkona hennar sagði við nýbakaðan eiginmann sinn um árið.
„Sko, ef þú ætlar að búa til barn með mér þá ert þú ekkert að fara að sulla í víni eða reykja,“ sagði vinkona hennar þegar hún og eiginmaðurinn voru í barneignahugleiðingum.
Lára bendir á að tilvonandi mæður séu hvattar til að haga sér á vissan hátt, hyggist þær á annað borð fjölga mannkyninu.
„Passa upp á að taka vítamín með fólínsýru. Hvorki neyta nikótíns né drekka áfengi. Gæta að lyfjum sem þær innbyrða. Á sama tíma er karlpeningurinn gjarnan undanskilinn. Stikkfrír. Engu er líkara en það skipti engu máli þótt hann stundi villt líferni á sama tíma og hann er á fullu að framleiða sáðfrumur sem senn gætu orðið að manneskju.“
Lára, sem ætti að þekkja þessi mál ágætlega þar sem hún er menntaður læknir, segir að tvo þurfi til svo að nýtt líf kvikni í móðurkviði.
„Móðir leggur til eggfrumu sem myndaðist þegar hún sjálf var einungis níu vikna fóstur í móðurkviði – líferni ömmu kemur því einnig við sögu. Við getnað er eggfruma því oft áratuga gömul. Aðra sögu er að segja með sáðfrumur sem eru í stöðugri endurnýjun og þurfa á þriðja mánuð til að ná þeim þroska að geta frjóvgað eggfrumu.“
Lára segir það liggja fyrir að ýmislegt í líferni og umhverfi hafi áhrif á erfðaefni, sérstaklega hjá frumum sem endurnýja sig hratt.
„Þar á meðal eru sáðfrumur. Vissulega er fleira sem spilar inn í þegar nýr einstaklingur verður til, en ég held að vinkona mín hafi haft eitthvað til síns máls. Karlmenn eru ekki stikkfríir frekar en við kvenmennirnir,“ segir Lára og bætir við að áhugi vísindamanna á sáðfrumum hafi kannski verið takmarkaður en við vitum til dæmis að nikótín fækkar þeim.
„Og væri ég ekki hissa ef líferni feðra hefði meiri áhrif en látið er með. Allavega munu mínir synir fá þessa óþægilegu ræðu frá mömmu sinni þegar þar að kemur.“