Lára G. Sigurðardóttir, læknir og bakþankahöfundur Fréttablaðsins, segir að líkt og annað ímyndunarríkt fólk geti hún verið fulldramatísk á köflum.
Lára er með skemmtilegri pistlahöfundum landsins og á baksíðu Fréttablaðsins í dag segir hún frá atviki í Heiðmörk á dögunum.
„Hvað er maðurinn að bardúsa þarna einn inni í skógi?“ hugsaði ég með mér þar sem ég var að taka á rás inn í Heiðmörk. Gleraugnalaus með pírð augu sá ég hvar maðurinn kastaði hnífum í tré. Allir hittu í mark. Ónot mögnuðust innanbrjósts því þarna vorum bara við – ég og hnífamaðurinn hittni. Fuglana setti meira að segja hljóða,“ segir Lára og bætir við að áður en hún vissi af hafi verið orðin móð og másandi og engan veginn getað einbeitt sér að lestri dr. Sapolski sem hún er með í eyrunum þessa dagana.
„Um miðja leið í náttúruparadísinni var ég farin að kveðja börnin mín og sannfæra mig um að það væri allt í lagi ef þetta væri búið. Ég hefði lifað góðu lífi. Þegar ég kom svo niður var fleira fólk mætt á svæðið og hnífamaðurinn á bak og burt,“ segir Lára sem reyndist þó ef til vill full dramatísk.
„Eftir á að hyggja hef ég líklega lesið um of mörg glæpamál í gegnum tíðina og augljóslega enn að burðast með leifar af „me-too“ bagga. En eftirköst dramasenunnar fengu mig til að endurskoða lífið á methraða,“ segir hún.
Lára tekur fram að lífi hennar hafi fylgt erfiðleikar líkt og hjá flestum okkar, enda erfitt að komast hjá þeim nema maður sé kominn undir græna torfu.
„Þegar upp er staðið er ég að vissu leyti þakklát þrautum mínum, því í þeim finnur maður sinn innri styrk. Í dag er mótlæti ósjaldan álitið óheppileg lífsreynsla. Vissulega má laga það sem betur má fara en framtíð án áfalla er tálsýn ein. Innihaldsríkt líf líkist ekki glansmyndum á Instagram, enda yrði það fljótt leiðigjarnt. Því líkt og við kunnum best að meta sólarupprás eftir langan dimman vetur, þá erum við líklega aldrei meira lifandi en þegar við erum minnt á að lífið er ekki sjálfgefið, hvort sem er í raunveruleikanum eða hugarskoti ímyndunar.“