Lára G. Sigurðardóttir læknir segir að barnið hennar hafi verið undrandi þegar hún reyndi að útskýra af kostgæfni hvers vegna Joe and the Juice væri ekki lengur í brottfararsal Leifsstöðvar.
Þetta kemur fram í bakþönkum Láru sem birtast í Fréttablaðinu í dag. „Vá, það er ruglað,“ sagði barnið eftir að Lára hafi útskýrt ástæðuna.
„Það var nefnilega fastur liður hjá okkur að birgja okkur upp fyrir flug með samloku og safa frá Joe. Barnið skildi ekki af hverju nú væri gerð krafa (eins fáránlega og það hljómar) um að veitingastaðir bjóði upp á áfengi. Ekki nóg með að verið væri að hvetja fólk til að innbyrða krabbameinsvaldandi efni, heldur líka að mæta undir áhrifum í flug,“ segir hún.
Lára segir að nýlega hafi birst könnun sem sýndi að rúmur meirihluti okkar vilji auka aðgengi að áfengi og leyfa sölu bjórs í búðum.
„Nú veit ég ekki hvaða hugsun liggur að baki, en það skiptir ekki máli í hvaða búningi alkóhól kemur – allt hefur það sömu eitrunaráhrif. Líka bjórinn. Sem dæmi, þá þekktist skorpulifur varla hér á landi fyrir 1989 – áður en bjórinn kom á markað.“
Lára veit hvað hún syngur í þessum efnum enda hefur hún undangengið ár sinnt læknisstörfum á Vogi þar sem hún segir starfsfólk leggja grísku gyðjunni Hekate lið.
„Hekate réttir hjálparhönd hverjum þeim sem vill úr viðjum fíknar. Sá hluti er dágóður en sjö prósent fullorðinna á Íslandi hefur lagst inn á Vog. Fjöldi annarra hefði gott af því, þar sem áætlað er að minnst 20% okkar séu með undirliggjandi fíknisjúkdóm. Við vitum öll að umhverfið hefur gríðarleg áhrif á neyslu og þekking ein og sér dugar ekki,“ segir Lára og bætir við:
„Hver hefur ekki heyrt af of feitum lækni eða fráskildum hjónabandsráðgjafa? Nú tel ég mig engan fanatíker, en er þetta það sem þjóðin vill? Að dreifa Bakkusi sem víðast, sem á að hafa orðið Rómaveldi að falli. Við þurfum að gera upp við okkur í hvoru liðinu við ætlum að vera, með Bakkusi eða Hekate.“