„Á lífsleiðinni verður á vegi okkar óteljandi fólk en það er fegurstu sálirnar sem aldrei hverfa úr minningunni,“ segir fjölmiðlakonan Lára Ómarsdóttir.
Lára leitaði til vina og vandamanna á Facebook í vikunni til að hafa upp á konu sem hafði mikil áhrif á hana fyrir margt löngu.
„Þannig er mál með vexti að árið 1995 þurfti ég að undirgangast nokkrar aðgerðir á Landspítala á nokkurra mánaða tímabili og fóru svæfingarnar þannig í mig að ég missti að hluta til minnið á þessu tímabili. Þess vegna man ég ómögulega hvað konan heitir og er svona að vona að einhver hér kannist við hana,“ sagði Lára í færslu sinni og gaf ákveðnar lýsingar á konunni.
Lára sagði að konan hefði alveg bjargað spítalavist hennar.
„Fyrst eftir aðgerðina, þegar ég var enn með drenið og allt draslið og komst ekki neitt, sótti hún mig og ók með mig í sjúkrarúminu um allan spítalann. Þegar ég svo gat staulast á fætur hvatti hún mig áfram og lét mig ganga um allt þegar mig langaði mest að væla bara og vorkenna mér.
Hún var svo jákvæð og viðhorf hennar til lífsins hafði mikil áhrif á mig. Hún kvartaði aldrei undan veikindum sínum sem voru svo miklu meiri en mín heldur var þakklát fyrir hvern dag. Ég man að hana langaði mikið að fara til útlanda með börnunum sínum og var að skipuleggja slíka ferð en til þess að hún gæti það þyrfti einhver að fara með henni því hún til dæmis gat ekki nærst almennilega.“
Sagði Lára að hana langaði mikið til að hitta konuna og þakka henni fyrir allt sem hún gaf henni.
Lára birti svo aðra færslu í gær þar sem hún greindi frá því að upplýsingar um konuna hefðu borist, en því miður hefði konan, sem hét Ólöf Einarsdóttir, látist árið 2015.
„Ólöf var mér alger stoð og stytta inni á spítalanum. Hún var alltaf kát og glöð og horfði jákvæðum augum til framtíðarinnar. Æðruleysi hennar var einstakt og þarna lærði ég að meta hvern dag og vera þakklát fyrir allt það góða sem lífið hefur upp á að bjóða,“ segir Lára sem þakkaði vinum sínum á Facebook.
„Það er ykkur, vinir mínir kærir, að þakka að ég hef nú haft samband við börnin hennar Ólafar og ætlum við að hittast í fjarspjall fljótlega til að rifja upp góðar minningar um afar mæta konu,“ segir hún í færslunni sem hún endar á þessum orðum:
„Ég hlakka til að hitta börnin hennar. Þau mega vita sem var að móðir þeirra var gull af konu og snart marga á lífsleið sinni, þar á meðal mig.“
Elsku vinir, kærar þakkir fyrir að hjálpa mér að finna Ólöfu Einarsdóttur og börnin hennar tvö <3 Eins og ég sagði...
Posted by Lara Omarsdottir on Fimmtudagur, 12. nóvember 2020