Lára læknir um drykkjuskap Íslendinga: Segir að þetta sé nauðsynlegt að gera

„Við verðum að hafna auknu aðgengi að áfengi og takmarka heldur sölu, áður en við sökkvum í haf Bakkusar. Heilsa þjóðarinnar þarf að ganga fyrir gróða einkafélaga – og drykkjusvalli.“

Þetta segir Lára G. Sigurðardóttir læknir í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.

Lára rifjar upp að árið 1843 hafi Dr. Jón Hjaltalín læknir skrifað grein þar sem hann fór hörðum orðum um drykkjuskap Íslendinga. Lýsti hann því hvernig áfengi væri þjóðarböl og drykkjurútar verði sjálfum sér eða öðrum að tjóni.

„Danir hlæja og hafa í skemmtisögum drykkjuskap Íslendinga. Leggur hann til að áfengi verði skattlagt og fjármagnið nýtt í vísindi.“

Lára bendir á að nú árið 2022 séu áfengisvísindin vel rannsökuð og staðreyndin sé sú að ekkert annað vímuefni valdi jafn miklum samfélagslegum skaða.

„Þá segir í skýrslu velferðarráðuneytisins að yfirmarkmið áfengisforvarna sé að takmarka aðgengi til að draga úr skaðlegum áhrifum. Þvert á lýðheilsustefnu þessa keppast sölu­aðilar og sumir alþingismenn við að rýmka aðgengi, svo auðveldara verði að koma bölinu heim í hús.“

Nefnir Lára að helstu rökin séu þau að þar sem aðgengi að áfengi hafi aukist sé nærtækast að auka það enn frekar. „Svolítið eins og að halda því fram að þar sem fólk keyri of hratt, þá skulum við leyfa því að keyra enn hraðar.“

Lára segir að ellefu manns látist að meðaltali í umferðinni hér á landi á hverju ári.

„Ef við heimfærum amerískar tölur á Ísland má áætla að 140 manns deyi ár hvert úr áfengiseitrun hér á landi. Þá er ótalinn samfélagsskaði af áfengi sem felst í ölvunarakstri, ofbeldi, örkumlum, örorku, sjúkdómum, veikindum og svo mætti lengi telja. Hafa skal í huga að 8,5% þjóðarinnar drekka hættulega mikið,“ segir hún.

Lára hvetur okkur til að gleyma ekki vísindunum sem sýna svart-á-hvítu hvernig draga megi úr ofdrykkju, líkt og draga megi úr hraðakstri.

„Við verðum að hafna auknu aðgengi að áfengi og takmarka heldur sölu, áður en við sökkvum í haf Bakkusar. Heilsa þjóðarinnar þarf að ganga fyrir gróða einkafélaga – og drykkjusvalli. Það var þegar ljóst fyrir 179 árum síðan.“