„Hver drengurinn á fætur öðrum birtist á bráðavaktinni með brákaðan eða brotinn útlim. Aðspurðir um tildrög áverkanna ypptu þeir öxlum þar til einn þeirra leysti frá skjóðunni,“ segir Lára G. Sigurðardóttir læknir í athyglisverðri grein í Fréttablaðinu um helgina.
Þar skrifar Lára um mátt áhrifavalda og þau áhrif sem þeir vissulega geta haft á ungt og óharðnað fólk. Dæmið sem Lára skrifar um hér að framan gerðist fyrir um það bil tuttugu árum síðan. Drengirnir höfðu verið að horfa á Jackass-þætti og voru drengirnir sem slösuðust undir áhrifum glæfralegra uppátækja sjónvarpsstjarna.
„Áhrifavaldar birtast í ýmsum myndum,“ segir Lára og bendir á að öll séum við undir áhrifum manna eins og Edward Jenner sem fyrstur manna bólusetti ungan dreng með kúabóluefni og sýndi að hægt var að gera fólk ónæmt fyrir bólusótt.
„Jenner bjargaði okkur frá lífsógnandi veirusjúkdómi sem dró þriðjung smitaðra til dauða,“ segir Lára sem bætir við að á okkar tímum sé annar Jenner mikill áhrifavaldur, enda með 190 milljónir fylgjenda á Instagram.
„Hún var búin að láta minnka nefið en stækka kinnbein, varir, brjóst og mjaðmir – allt fyrir 21 árs aldur. Aðgerðirnar hlaupa væntanlega á tugum milljóna en hún hefur efni á þeim. Unglingsstúlkur og ungar konur samtímans eru undir áhrifum að vera óaðfinnanlegar í útliti,“ segir hún og bætir við á Jenner samtímans sjáum við áhrifavalda sperra sig fáklædda á samfélagsmiðlum og selja okkur fegurðarstaðal.
„Þeir hnykla vöðva og selja okkur uppskrift að hreysti. Þeir fljóta jafnvel niður Stuðlagil á uppblásnum einhyrningi og sýna hvernig lifa eigi lífinu. Sem er ekki mitt að dæma, en við erum undir áhrifum að vera sætari, vöðvastæltari og hugdjarfari.“
Lára segir svo frá rannsókn vísindamanna sem skiptu unglingum í tvo hópa og sýndu þeim sömu myndirnar. „Sama myndin var sýnd með mörgum lækum hjá öðrum hópnum en fáum hjá hinum. Í ljós kom að unglingarnir voru líklegri til að læka mynd sem hafði mörg læk – sem skýrir ýmislegt. Áhrifavaldar sem læka hvern annan vita hvað þeir eru að gera: „Lækaðu mig og ég læka þig.“
Lára segir að einnig hafi verið sýnt fram á að það að búast við lækum hafi virkjað sama umbunarsvæði heilans og nikótín og áfengi virkar á. „Kikkið sem kemur manni í smá vímu með hverju læki getur þannig orðið ávanabindandi. Merkilegt er, að þegar unglingarnir horfðu á myndir af áhættuatriðum þá minnkaði virkni í vitsmunasvæðum heilans. Þeir urðu ólíklegri til að geta hamið eigin áhættuhegðun.“
Lára segir að þegar maður er undir áhrifum annarra þá sé hætt við að eigin ástríða víki. Hugsanir hætti að samrýmast eigin dyggðum og maður fari að lifa í skugga annars.
„Þrátt fyrir langar viðvaranir í aðdraganda hvers þáttar af Jackass, þá slösuðust börn víða við að herma eftir áhættuatriðum og eftir mikla gagnrýni hætti MTV sjónvarpsstöðin framleiðslu þáttanna. Með þetta í huga vona ég að þið lækið ykkur sjálf meira og skínið ykkar skærasta í sviðsljósi eigin lífs.“