Lára gat ekki illa hætt að hugsa um það sem flugfreyjan sagði

Lára G. Sigurðardóttir, bakaþankahöfundur Fréttablaðsins, þykir í hópi skemmtilegustu pistlahöfunda landsins. Hún sendir nýrri ríkisstjórn skýr skilaboð í pistli á baksíðu blaðsins í dag.

Pistill Láru hefst á þessum orðum:

„Við erum svo spennt yfir að vígja nýja Max-vél. Þetta er fyrsta flugið,“ heyrði ég flugfreyju segja við fólk sem sat fyrir aftan mig í vélinni þegar ég var að koma mér þægilega fyrir í sætaröð sem ég hafði út af fyrir mig (af einskærri heppni). Fyrir stafni var langt flug frá Seattle til Keflavíkur. Í stað þess að sofa værum blundi ásóttu mig fréttainnslög frá Max 737 flugslysunum, sem urðu árin 2018 og 2019. Flugvélarnar voru kyrrsettar í kjölfarið.“

Lára bendir á að ný ríkisstjórn sé nú að taka á loft og kveðst hún binda vonir við betri tíð.

„Nú verður hrist upp í hreiðrinu. Aðgerðir sem byggðar eru á gagnreyndri þekkingu munu fljúga úr þingsal og lenda með lausnamiðaðri nálgun sem styður við heilsu og líðan okkar almúgans. Því til að efla heilsu þjóðarinnar, fækka sjúkdómum og bæta líðan fólks, þarf að liggja yfir skýrslum sem sýna svart á hvítu hvað virkar – og hvað ekki. Að gera það ekki er eins og að setjast upp í flugvél með flugstjóra sem fékk flugskírteinið sitt úr kókópuffspakka og ætlar að treysta á eigin tilfinningar.“

Hún segir að mestu framfarir í lýðheilsumálum verði þegar menn horfa í skýrslur sem byggja á rannsóknum, læra af þeim og aðlaga samfélaginu. Hún starfaði sjálf sem flugfreyja fyrir margt löngu og á þeim árum segist hún hafa lært um ótal flugslys. Þetta var ekki gert til að hræða fólk, heldur til að læra af mistökum annarra og öðlast betri þekkingu til að auka öryggi farþega.

„Á milli þess sem ég reyndi að hughreysta mig með því að ég væri í öruggum höndum flugáhafnar missti hjartað slag við tilhugsunina um að ég hefði í raun enga stjórn á aðstæðum. Nú er spurning hvort við þurfum að missa slag yfir lýðheilsuaðgerðum þingsins. Erum við að fara að horfa á blindflug eða verða vel upplýstir flugstjórar við stjórnartaumana.“