Lára fékk veglega launahækkun hjá Róberti Wessman

Fjölmiðlakonan Lára Ómarsdóttir virðist hafa fengið ríflega launahækkun þegar hún var ráðin samskiptastjóri Aztiq Fund, fjárfestingafélags Róberts Wessman og Árna Harðarsonar.

Samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra sem lögð var fram í dag námu mánaðartekjur Láru rúmum tveimur milljónum króna í fyrra, eða 2.119.610 til að gæta nákvæmni.

Tilkynnt var um ráðninguna í febrúar 2021 en í kveðjupósti Láru til samstarfsmanna sinna á RÚV, sem fréttavefur Vísis fjallaði um á sínum tíma, sagðist hún hafa fengið boð um óvænt starf sem væri of spennandi til að hafna. Borið hefur á því á undanförnum árum að reyndir fjölmiðlamenn söðli um og fari í betur launuð störf, til dæmis sem samskiptastjórar eða upplýsingafulltrúar.

Er það sjaldgæft að laun óbreyttra blaðamanna eða millistjórnenda á fjölmiðlum fari upp fyrir eina milljón króna.

Lára var einn reyndasti fréttamaður RÚV en hún hafði verið í tólf ár hjá stofnuninni, bæði í fréttum og í sjónvarpsþættinum Kveik svo dæmi séu nefnd. Aztiq er stórt fjárfestingafélag og eru stærstu eignir hans hlutir í félögunum Alvogen og Alvotech.