Lára alltaf sent jólakort en er efins núna: Sjáðu hvað kostar að senda eitt kort

Lára Ómarsdóttir, margreynd fjölmiðlakona og samskiptastjóri fjárfestingafélagisns Aztiq, kveðst alltaf hafa sent jólakort. Nú er hún hins vegar efins enda kostnaðurinn við að senda jólakort talsverður.

„Ég hef alltaf sent jólakort en nú er ég efins. Það kostar 224 krónur að senda eitt kort. Vanalega hef ég sent svona 60-80 kort og nú langar mig að senda miklu fleiri eða um 150 eða sleppa því alveg,“ segir Lára á Facebook.

Hún segist vel geta sent örfáum kort, til dæmis 20, en þá sé erfitt að velja hverjir eiga að fá kort og hverjir ekki.

„Ég er ekki hissa á að fólki sleppi jólakortunum, þetta er bara orðið frekar dýrt. Á móti kemur að það er frekar súrt að þessi hefð leggist af,“ segir hún.

Þeim hefur fækkað ár frá ári sem senda jólakort. Þessi ríka jólahefð virðist vera að lognast út af enda sífellt fleiri farnir að senda rafrænar kveðjur. Samkvæmt könnun MMR í fyrra sögðust aðeins 16% landsmanna ætla að senda jólakort í bréfpósti.