Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur og oddviti Samfylkingarinnar, nýtur yfirburðarstuðnings til að gegna áfram starfi borgarstjóra samkvæmt niðurstöðum könnunar sem birtar eru í Fréttablaðinu í dag.
Í könnunni, sem var framkvæmd dagana 13. til 26. apríl, var spurt um stuðning við flokka og frambjóðendur fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Samkvæmt könnuninni er Samfylkingin með 23,3 prósenta fylgi en fylgi Sjálfstæðisflokksins er komnn niður fyrir 20 prósent. Flokkarnir sem eiga í meirihlutasamstarfi í borginni halda meirihluta sínum samkvæmt könnuninni, mælast samanlagt með 52,2 prósent og fengju 12 af 23 borgarfulltrúum.
Í könnuninni var einnig leitað svara um hvern borgarbúar vilja helst sjá sem borgarstjóra. Þar hefur Dagur B. Eggertsson sitjandi borgarstjóri nokkra yfirburði en 30 prósent aðspurðra vilja helst hafa hann áfram í því embætti.
Dagur nýtur yfirgnæfandi stuðnings í sínum flokki en 89 prósent kjósenda Samfylkingarinnar velja hann. Kjósendur annarra flokka í meirihlutasamstarfinu nefna hann einnig oft. Þannig velja 28 prósent kjósenda Pírata Dag sem borgarstjóra og 40 prósent kjósenda Vinstri grænna.
Aðeins helmingur kjósenda segist helst vilja sjá oddvita flokksins, Líf Magneudóttur, sem borgarstjóra í Reykjavík.
Hildur Björnsdóttir, oddviti lista Sjálfstæðisflokksins, nýtur 19 prósenta stuðnings í stöðu borgarstjóra og þrettán prósent þátttakenda sögðust vilja sjá Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknarflokksins, sem borgarstjóra. Níu prósent vilja Dóru Björt Guðjónsdóttur, oddvita Pírata, sjö prósent Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, Sósíalistum og fimm prósent nefndu Kolbrúnu Baldursdóttur, oddvita Flokks fólksins. Aðrir oddvitar fengu innan við fimm prósenta stuðning í könnuninni.