Guðmundur Hjaltason, framkvæmdastjóri Elko, segir að ákveðin mótsögn sé fólgin í aðgerðum yfirvalda um fjöldatakmarkanir í verslunum.
Langar raðir mynduðust víða við verslanir á höfuðborgarsvæðinu um helgina enda rétt rúmur mánuður til jóla. Tíu manns mega koma saman í verslunum en fleiri eru þó leyfðir í matvöruverslunum og apótekum svo dæmi séu tekin.
Gestur er í viðtali í Morgunblaðinu í dag og segir hann að vel hafi gengið að stýra aðgengi fólks að verslunum Elko. Hann segir þó að vel væri hægt að tryggja fjarlægðarmörk þó fleiri yrði hleypt inn.
„Maður hefur mestar áhyggjur af röðum, enda ráðum við ekki við þær. Þær eru í raun utan okkar verksviðs, en þetta hefur gengið merkilega vel,“ segir hann og bætir við að hann hafi fullan skilning á sóttvarnaraðgerðum yfirvalda.
„Ég skil alveg aðstæður og veit að það er erfitt að gera undantekningu. Elko í Lindum er jafnstór og Krónan, sem er næsta verslun við okkur. Þeir mega hafa 200 manns en við bara tíu,“ segir hann.
Sigríður Á Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tekur undir þetta og segir reglurnar vera orðnar of flóknar. „Ég held að þetta sé eitthvað sem menn verði að útskýra. Eina sem ég veit fyrir víst er að fólk á ekki að norpa úti í kuldanum.“