Langamma Lilju brást ókvæða við þegar hún sagðist styðja Albert

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, rifjar upp skemmtilega sögu í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Tilefni greinarinnar er 90 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, í dag.

„Vorið 1980 sat 6 ára stúlka í kjöltu lang­ömmu sinnar og ræddi stóru mál lífsins. Lang­amman spurði hvern stúlkan ætlaði að styðja í for­seta­kosningunum sem voru þá á næsta leiti. Stúlkan sagðist halda með Alberti Guð­munds­syni, enda hefði hún mikinn á­huga á í­þróttum. Lang­amman brást ó­kvæða við og sagði sögu­legt tæki­færi blasa við Ís­lendingum, sem gætu orðið fyrstir í sögunni til að velja konu sem þjóð­höfðingja. Við stelpurnar ættum að standa saman, ekkert annað kæmi til greina,“ rifjar Lilja upp í greininni.

Þá hafði langamma hennar á orði að frambjóðandinn, Vigdís Finnbogadóttir, væri einstök hæfileikakona sem myndi sóma sér vel á Bessastöðum. Lilja segir að langamma hafi verið svo sannfærandi og ákveðin að litla stúlkan ákvað að fylgja langömmu sinni að máli, eins og svo oft áður.

„Lang­amma reyndist sann­spá og for­seta­tíð frú Vig­dísar Finn­boga­dóttur varð sögu­leg. Fram­lag Vig­dísar til jafn­réttis­mála var ó­metan­legt, bæði á Ís­landi og heims­vísu. Með sigri í lýð­ræðis­legum kosningum braut hún gler­þak sem engin kona hafði áður gert. Þá hefur ást­ríða Vig­dísar fyrir ís­lenskri tungu verið afar dýr­mæt, enda kenndi hún okkur betur en aðrir að meta sam­spil tungu­máls og menningar. Jafn­framt jók hún mjög hróður Ís­lands á al­þjóða­vett­vangi, því þar sem Vig­dís talaði var hlustað. Fleira mætti telja til, svo sem bar­áttu hennar fyrir skóg­rækt og um­hverfis­málum og að tengja saman kyn­slóðir með fram­sýni.“

Lilja segir að langamma hennar hefði orðið 110 ára í ár. Hún rak matstofu í Aðalstræti 12 og var virk í verkalýðsbaráttu alla sína tíð.

„Hún hafði mikil á­hrif á mig og alla fjöl­skylduna. Ég á henni mikið að þakka fyrir að halda mér stöðugt við efnið og sjá sam­hengi hlutanna. Þær Vig­dís eiga það sam­eigin­legt að hafa gert kraft­verk í lífi fólksins í kringum þær, jafn­vel við að­stæður sem virtust ó­yfir­stígan­legar. Þessi kyn­slóð for­mæðra okkar ein­kenndist af vilja­styrk og þraut­seigju sem fleytti henni yfir skerin og heilli í höfn,“ segir hún.

Lilja endar grein sína síðan á góðri kveðju til frú Vigdísar Finnbogadóttur. „Til hamingju með daginn! Ég vil þakka þér fyrir ó­metan­legt starf, for­ystu og að hafa vísað okkur veginn.“