Landsþekktir sýna Sigmundi Davíð stuðning: „Þetta er skammarlegt“

Fjölmargir hafa sýnt Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, stuðning eftir færslu hans í gærkvöldi sem vakti gríðarlega athygli.

Sjá einnig: „Einhverra hluta vegna sá kennari við Verzló ástæðu til að reyna að setja mig í hóp með Hitler og Mússólíní“

Sigmundur birti þar mynd sem tekin var í kennslustund Verzlunarskóla Íslands, en uppi á vegg kennslustofunnar var búið að varpa mynd af Sigmundi við hlið Adolf Hitler og Benító Mússólíní undir yfirskriftinni: „Nokkrir merkir þjóðernissinnar“.

„Foreldrar víða um lönd hafa áhyggjur af því sem börnum þeirra er kennt í skólum nú til dags. Það er ekki alltaf að ástæðulausu. Sums staðar hefur pólitískur áróður kennaranna tekið við af fræðslu,“ sagði Sigmundur meðal annars í færslunni.

Eðli málsins samkvæmt er Sigmundur ósáttur við að vera stillt upp við hlið þessara manna. „Ég veit ekki hvort óþverrabragð kennarans við Verzlunarskólann stafar eingöngu af löngun til að afvegaleiða nemendur pólitískt eða hvort hann var sjálfur afvegaleiddur á yngri árum og veit bara ekki betur,“ sagði Sigmundur Davíð í færslu sinni og sýndu honum margir stuðning.

„Ömurlegt,“ sagði sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason við færsluna. Leifur Ragnar Jónsson, sóknarprestur Guðríðarkirkju, skrifaði einnig athugasemd og sagði: „Þetta er ógeðslegt.“

Arnar Þór Jónsson, varaþingmaður og fyrrverandi dómari, segir þetta ískyggilegt.

„Fleiri en ég hafa varað við því hvernig menntastofnanir vanrækja gagnrýna hugsun. Frjálsar menntir eiga ekki skjól í skólum sem stunda innrætingu. Veruleikinn er að verða eins sá sem Orwell lýsir í 1984: Heilbrigð skynsemi og sjálfstæð hugsun er minnst á meðal þeirra sem lengst hafa sætt heilaþvotti í skólakerfinu.“

Hæstaréttarlögmaðurinn og fyrrverandi blaðaútgefandinn Sigurður G. Guðjónsson gagnrýnir kennarann harðlega. „Þetta sýnir betur en nokkuð annað heimsku kennarans. RÚV tekur kannski á þessu máli eins og tröllamálinu úr Vestmannaeyjum.“

Blaðamaðurinn Stefán Einar Stefánsson er ekki ánægður með sinn gamla skóla og segir: „Hvaða sauður fékk kennslustarf við minn gamla góða skóla?“

Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur lýsir óánægju sinni. „Þetta er óverjandi rugl og - sá sem þetta gerir tekur hvorki fasisma né nasisma mógu alvarlega til að geta kennt þetta efni.“

Margrét Friðriksdóttir segir að reka eigi kennarann. „Hann er ekki starfi sínu vaxinn og þetta flokkast undir hatursorðræðu.“ Og meira að segja ráðherranum fyrrverandi, Kristjáni L. Möller, er misboðið. „Ósvífni að hæstu hæðum, skólayfirvöld verða að taka þetta fyrir hjá sér og áminna kennarann og biðjast afsökunar á þessari hegðun.“