Landsmenn virðast sáttir við hertar aðgerðir

Svo virðist sem landsmenn séu almennt sáttir við þær hertu sóttvarnaráðstafanir sem yfirvöld ákváðu að grípa til í gær og tóku gildi á miðnætti.

Í könnun sem Fréttablaðið gerði á Instagram meðal fylgjenda sinna var spurt: Ertu sammála nýjustu sóttvarnarreglum?

Það er skemmst frá því að segja að langflestir svöruðu játandi, eða 76%, en aðeins 24% sögðu nei. Þó nokkur fjöldi fólks tók þátt í könnuninni, eða 1.400 manns. Liðlega 1.060 svöruðu spurningunni játandi en rúmlega 340 sögðu nei.

Breytingarnar sem tóku gildi á miðnætti voru nokkuð viðamiklar en nú mega aðeins tíu manns koma saman auk þess sem allir skólar, að leikskólum undanskildum, verða lokaðir fram yfir páska. Þá var líkamsræktarstöðvum og sundstöðum gert að loka svo fátt eitt sé nefnt. Hertar reglur munu gilda í þrjár vikur.