Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, segir að sá tími sé liðinn að konur séu dæmdar eftir útliti sínu. Gunnhildur segir þetta á Twitter en bandarískir fjölmiðlar hafa fjallað nokkuð um mál sem varðar Andy Carroll, eiganda MLS-liðsins Utah Royals sem Gunnhildur hefur leikið með.
DV fjallaði um málið á vef sínum í gær.
Þar kom meðal annars fram að umræddur Carroll hefði fyrirskipað starfsmönnum, ljósmyndurum þar á meðal, að mynda leikmenn á eins kynþokkafullan hátt og möguleiki væri á. Vildi Carroll að tvær konur í liðinu, sem honum þótti kynþokkafyllstar, yrðu notaðar í auglýsingaherferðum liðsins en ekki aðrir leikmenn, Gunnhildur Yrsa þar á meðal, þar sem þær þóttu ekki eins kynþokkafullar eða fallegar.
Gunnhildur er nefnd sérstaklega á nafn í umfjöllun bandarískra fjölmiðla.
Gunnhildur tjáði sig um málið á Twitter í dag þar sem hún sagði ummæli Carrolls ógeðsleg. „Þar sem ég var persónulega nefnd á nafn vil ég segja að nú er nóg komið. Dagarnir þar sem konur eru dæmdar eftir útliti sínu eru LIÐNIR. Ég mun ekki þegja lengur.“
Gunnhildur Yrsa hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu á undanförnum árum. Hún hefur spilað 71 landsleik og skorað 10 mörk.
Twitter-færsla Gunnhildar hefur vakið talsverða athygli og fær hún mikinn stuðning, eðli málsins samkvæmt. „Þú átt betra skilið. Þú ert ótrúleg, aldrei gleyma því,“ segir einn á meðan annar bætir við: „Mjög leiðinlegt að þetta hafi gerst fyrir þig og aðrar konur hjá Utah Royals. Þið eigið skilið að komið sé fram við ykkur af virðingu og reisn.“
Theses remarks are disgusting and as someone who was personally named I want to say...Enough. The days where women are judged by their looks are OVER. I won’t be silent anymore.
— Gunnhildur Yrsa (@Gunnhildur_Yrsa) September 3, 2020
As @beckysauerbrunn says: our accomplishments are worthy of recognition, in and of themselves. https://t.co/7o0mdouKUQ