Lands­fundur Sjálf­stæðis­flokksins á næsta leyti

Mið­stjórn Sjálf­stæðis­flokksins á­kvað á fundi sínum í dag að 44. lands­fundur Sjálf­stæðis­flokksins, sem fresta hefur þurft vegna heims­far­aldursins, fari fram í Laugar­dals­höll dagana 27. – 29. ágúst nk. Þetta kemur fram í frétta­til­kynningu frá Sjálf­stæðis­flokknum

„Lands­fundur Sjálf­stæðis­flokksins er ein stærsta lýð­ræðis­sam­koma Ís­lands, en þar eiga vel á annað þúsund full­trúar setu­rétt hverju sinni. Á fundinum er mörkuð heildar­stefna flokksins í lands­málum, æðsta for­ysta flokksins er kosin, auk þess sem fundurinn kýs stjórnir mál­efna­nefnda sem halda utan um mál­efna­starf flokksins á milli lands­funda,“ segir í til­kynningunni.

Hvert fé­lag innan flokksins kýs full­trúa til setu á fundinum, auk lands­sam­banda og full­trúa­ráða. Þá eru flokks­ráðs­menn einnig sjálf­kjörnir á lands­fund. Kjör­gengir á lands­fund eru flokks­bundnir Sjálf­stæðis­menn.