Beiðni um úthlutun frá Fjölskylduhjálp Íslands fer nú fram um sérstaka vefsíðu eða símanúmer sem svarað er í á mörgum tungumálum. Sjálfboðaliðar tóku sig til og settu heimsendingarkerfi á vegna samkomubannsins sem tók gildi í dag.
Vegna samkomubanns er ekki hægt að úthluta mataraðstoð sem fjölda fólks reiðir sig á í hverjum mánuði og Fjölskylduhjálp Íslands sinnir. Við þessu hefur verið brugðist við með sameiginlegu átaki sjálfboðaliða. Steingrímur Sævarr Ólafsson segir frá því í samtali við Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld hvernig frumkvæðið kom frá elshúsborði sambýlisfólks sem vildi gera eitthvað til að hjálpa til. Svo fór allt af stað og núna er stór hópur sjálfboðaliða að sinna matargjöfum Fjölskylduhjálparinnar í samstarfi við Landsbjörgu.
Ekki er lengur hægt að mæta á þann stað þar sem úthlutanir fara fram vegna samkomubanns um hundrað manns eða meira en vel fyrir 500 fjölskyldur eða einstaklingar reiða sig á matarhjálpina.
Fólk skráir sig á tiltekið netfang: http://skraning.fjolskylduhjalp.is/ eða getur hringt í símanúmerið 551-3360. Í númer svarar fjöldi manns sem talar utan íslensku, ensku, pólsku, arabísku og spænsku. Fólk svarar í númerið heiman frá sér og leiðbeinir fólki um hvernig matargjafirnar fást sendar. Landsbjargarfólk kemur pokunm utan við heimili fólks.
Að fengnu leyfi frá Almannavörnum og með vitund embættis sóttvarnarlæknis fór þessi vinna af stað í dag.