Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði á dögunum konu af kröfu Landsbankans um greiðslu 2,4 milljóna króna skuldar vegna bílaláns.
Var það mat dómsins að skuldin hafi þegar verið greidd að fullu og í ljósi þess gæti bankinn ekki krafist frekari greiðslna. Búið var að greiða tæplega 3,4 milljónir inn á lánið, er segir í frétt á vef Viðskiptablaðsins.
Riftu kaupleigusamningi
Málið snýst um kaupleigusamning á Toyota Land Cruiser sem gerður var við SP Fjármögnun. Konan sem um ræðir tók yfir samninginn árið 2010 og voru eftirstöðvar hans þá 2,7 milljónir króna.
Árið 2012 urðu vanskil á samningnum og honum rift. Eftir það féllu til stöðumælasektir, bifreiðagjöld og vanræsklugjald sem falla áttu á hana.
Fram kemur í frétt Viðskiptablaðsins að bílnum hafi síðan verið skilað til Landsbankans í maí 2016 og var matsverð hans þá ríflega 1,4 milljónir króna.
Taldi skuldina ekki greidda
Eftir sölu bílsins á uppboði taldi bankinn skuldina ekki fullgreidda. Enn ætti eftir að greiða ýmis vanskil, stöðumælasektir og gjöld.
Konan taldi hins vegar að hún hefði greitt kröfuna að fullu og í raun ofgreitt sem næmi tæplega 300 þúsund krónum. Bankinn mótmælti þessu og taldi til ýmis ógreiddan kostnað á borð við dráttarvexti og málskostnað.
Tilgreindu ekki dráttarvextina í upphafi
Héraðsdómur sagði þó að þessi kostnaður hafi ekki verið tilgreindur sem dómkrafa af hálfu Landsbankans í upphafi málsins og því ekki hægt að taka tillit til hans.
Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að miðað við fyrirliggjandi dómkröfu bankans hefði konan greitt höfuðstól lánsins og öll þau gjöld sem krafist var greiðslu á. Skuldin væri því að fullu greidd.