Samfélag áhugafólks um landgræðslu á Íslandi logar eftir að Aðalsteinn Sigurgeirsson fagmálastjóri Skógræktarinnar gagnrýndi harðlega grein Þórunnar Wolfram, sviðsstjóra hjá Landgræðslunni.
Í grein sinni á vef Kjarnans segir Þórunn að Íslensk stjórnvöld, fyrirtæki og einstaklingar þurfa að bregðast kröftugar við ákalli Sameinuðu þjóðanna og setja stóraukin þunga í loftslagsaðgerðir sem stuðla að náttúruvernd samhliða samdrætti í losun.
Nefndi hún sérstaklega endurheimt vistkerfa:
„Þetta þýðir á mannamáli að skógrækt með innfluttum tegundum, eins og stafafuru, greni, lerki eða ösp, fellur ekki undir þessa skilgreiningu og er því ekki náttúruverndaraðgerð.“
Aðalsteinn var ekki sáttur og sagði í Facebookhópnum:
„Í grunninn er einfalt að taka fáránlega einfalda afstöðu til allra álitamála. En þá aðeins ef sú afstaða byggist á einfeldningshætti og kreddufestu,“ sagði hann og bætti við: „Starfsfólk Landgræðslunnar sem hefur engan áhuga á landgræðslu. Er nokkur furða þó margir velti því fyrir sér hvort slíka stofnun sé á vetur setjandi?“
Týr Þórarinsson, betur þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni, kom Þórunni, eiginkonu sinni til varnar og uppskar reiði. Þá sagði hann: „Ég er fullmeðvitaður um maka minn en líka að þú sért opinber starfsmaður og staðgengill skógræktarstjóra og gersamlega vanhæfur að nota samfélagsmiðla. Ég hélt að tími freka kallsins væri liðinn? En greinilega ekki.“
Þórunn var ekki sátt og sagði Aðalstein fara niðurlægjandi orðum um sig og Landgræðsluna: „Við taka svo gaslýsingar og orðaofbeldi. Mig langar bara að benda á að þar sem Aðalsteinn hefur blokkað mig á fb fyrir talsvert löngu síðan (af hverju veit ég ekki) þá sé ég ekkert af ummælunum sem fylgja í þræðinum og hef engin tök á að taka þátt í þeim.“
Árni Bragason, samstarfsmaður Þórunnar, sagði að Aðalsteinn hefði oft fengið styrk hjá Landgræslunni: „Svona sjúk skrif og framkoma er ekkert annað en ofbeldi af verstu gerð og dapurlegt að stjórnandi síðunnar skuli láta þetta viðgangast.“
Una nokkur kjarnaði svo umræðuna í kjölfarið:
„*Árni Bragason tekur ekki þátt í umræðunni og allir eru brjálaðir yfir þvi að ríkisstarfsmaðurinn sé ekki að sinna vinnunni sinni sem slíkur.*
*Árni Bragason tekur þátt í umræðunni hérna og allir eru brjálaðir og hafa àhyggur af því að ríkisstarfsmaðurinn sé á Facebook í vinnunni*“