Land er tekið að rísa við fjallið Þorbjörn skammt frá Grindavík, risið er þó hægara en í janúar og engin merki um gosóróa. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar.
„Á síðustu dögum hafa niðurstöður jarðskorpumælinga verið að skýrast og nú er ljóst að þensla sem veldur landrisi er hafin að nýju við Þorbjörn. Þetta staðfesta bæði GPS mælingar á svæðinu og einnig gögn frá gervihnöttum,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar. Vísindamenn Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans og Ísor funduðu í morgun og rýndu nýjustu mælingar og gögn. Verður fundað aftur í næstu viku.
Benedikt Gunnar Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir landrisið vera um 20 mm sem sé í raun sáralítið. Mjög erfitt sé að greina svo litlar breytingar með þeirri tækni sem til staðar er. „Oft þarf því að safna gögnum í einhverja daga til að fá það staðfest að landris hafi orðið eða eigi sér stað,“ segir Benedikt. „Nú erum við farin að sjá merki um landris og benda okkar útreikningar til þess að það eigi sér svipaðan uppruna og landrisið í janúar.“