Land Cru­iser jeppa Þráins stolið fyrir utan vinnu­staðinn – Náði nokkrum myndum af þrjótinum

Þráinn Freyr Vig­fús­son, kokkur og eig­andi veitinga­staðarins Sumac Grill + Drin­ks greinir frá því á Face­book í kvöld að Land Cru­iser jeppanum hans hafi verið stolið fyrir utan veitinga­staðinn.

„Jeppanum mínum var stolið fyrir framan Sumac í dag kl.17.01 IAS75 silfraður land cru­ser! Ef þið kannist við þennan mann eða hafið séð hann endi­­lega látið mig eða lög­­regluna vita,“ skrifar Þráinn á Face­book.