„Við vonum innilega að þessi tillaga nefndarmanna verði felld á Alþingi enda örugglega í engu samræmi við vilja þjóðarinnar,“ segir í tilkynningu sem birtist á vef Vantrúar í morgun.
Þar er tillaga meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna í efnahags- og viðskiptanefnd gagnrýnd harðlega, en hún leggur til að sóknargjöld til trúfélaga hækki um 280 milljónir króna á næsta ári. Bent er á það að á sama tíma er 400 milljóna króna aðhaldskrafa á Landspítala.
„Vantrú mótmælir því harðlega að hækka eigi þessi framlög til trúfélaga á sama tíma og skorið er niður í mikilvægum málaflokkum. Trúfélög ættu auðvitað helst að vera rekin án aðkomu ríkisins, en á meðan settar eru aðhaldskröfur á heilbrigðisstofnanir er skammarlegt að hækka framlög ríkisins til Þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga,“ segir í tilkynningunni.
„Það er ömurlegt að þingmenn á borð við Willum Þór Þórsson fullyrði í fjölmiðlum að á næsta ári verið bara skorið niður um 400 milljónir hjá Landsspítalanum á meðan það er hægt að gefa Þjóðkirkjunni og öðrum trúfélögum árlega 280 milljónir til viðbótar.“
Þá er Ólafur Þór Gunnarsson, fulltrúi VG í nefndinni, gagnrýndur en hann er læknismenntaður. Það sé ótrúlegt að hann telji eðlilegt að hækka framlög ríkisins til reksturs trúfélaga um leið og framlög ríkisins til reksturs heilbrigðiskerfisins eru skorin niður.
„Í könnunum sem hafa verið gerðar um forgangsröðunar fjármála ríkisins setja landsmenn heilbrigðismál í fyrsta sæti og trúmál í neðsta. Við vonum innilega að þessi tillaga nefndarmanna verði felld á Alþingi enda örugglega í engu samræmi við vilja þjóðarinnar.“