Lætur Ásgeir seðlabankastjóra hafa það óþvegið: „Við eldum hádegisverðinn þinn og færum þér kaffi“

„Þú segir að við eigum ekki að biðja um að hafa það betra. Ég segi að þú eigir að búa þig undir það versta,“ segir Ian McDonald, verkamaður og félagi í Eflingu, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Um er að ræða opið bréf til Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra og segist Ian hafa skrifað bréfið sem viðbragð við viðtali fyrir skemmstu þar sem Ásgeir sagði að verkafólk á Íslandi ætti ekki að búast við launahækkunum í komandi kjarasamningum. Sagði Ásgeir að Seðlabankinn myndi neyðast til að grípa til aðgerða ef launahækkanir væru taldar „óraunhæfar“ eða „út úr öllu korti“.

„Ég skrifa sem aðfluttur láglaunamaður sem starfar í iðnaði, og sem einn af þeim sem eiga líf sitt og velferð beinlínis undir ákvörðunum Seðlabankans,“ segir Ian í bréfi sínu og telur svo nokkur atriði upp máli sínu til stuðnings.

„Við eldum hádegisverðinn þinn og færum þér kaffi. Við gerum við bílinn þinn, malbikum vegina þína og fjarlægjum ruslið þitt. Við tryggjum að þú sért með rennandi vatn og rafmagn, við gætum barnanna þinna og þrífum heimili þitt. Við byggðum samfélagið þitt og berum ábyrgð á að halda því gangandi. Við slítum okkur út í skiptum fyrir lúsalaun og skríðum heim í lok dags bara til að sofna og byrja upp á nýtt daginn eftir. Við erum grundvöllurinn og undirstaða alls sem þér er heilagt, en þrátt fyrir það virðist þú hafa gleymt gríðarlegu mikilvægi okkar.“

Ian bendir á að stundum gerist breytingar með einni stórri skriðu, jarðskjálfta sem hristir samfélagið inn að kviku. Í öðrum tilvikum séu það þúsund litlar hreyfingar, svo miklu stærri en summan af pörtunum.

„Hreyfing eins og það að höndin láti frá sér verkfærið og neiti að taka það upp aftur. Margfölduð aftur og aftur. Þú segir að við eigum ekki að biðja um að hafa það betra. Ég segi að þú eigir að búa þig undir það versta.“