Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er í einlægu viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins í tilefni af níræðisafmæli sínu þann 15. apríl næstkomandi.
Vigdís fer um víðan völl í viðtalinu og ræðir meðal annars forsetatíð sína frá 1980 til 1996. Þá er hún einnig spurð að því hvaða lærdóm Íslendingar geta dregið nú á tímum COVID-19 faraldurs og samkomubanns. Ekki stendur á svörum hjá Vigdísi.
„Kannski er lærdómurinn sá að ekkert er öruggt í þessum heimi. Þetta er eins og styrjöld nema þetta ástand er ekki sjálfskapað eins og styrjaldir eru. Enginn er óhultur í stríði. Skjólleysið er algjört því það er sama hvar við erum, við erum skjóllaus gagnvart þessari veiru.
Það er merkilegt að upplifa þessa tíma og viðbrögðin við þeim. Mér finnst við sem þjóð hafa brugðist við á aðdáunarverðan hátt. Ég ber mikla virðingu fyrir og dáist að þessari þjóð og hversu vel við höfum tekist á við þetta verkefni.
Þar skiptir tungumálið einnig höfuðmáli. Við tölum öll sama tungumálið og horfum á sömu fréttirnar, - þannig erum við öll meðvituð um hvað er á seyði. Við erum öll læs og höfum aðgang að fjölmiðlum sem tengja okkur við heiminn.
Það eru mikil forréttindi að vera hluti af smáþjóð. Það ríkir mikil umhyggja hjá smáþjóðum. Við berum mikla virðingu fyrir lífinu,“ segir Vigdís.