Læknir á Heilsu­gæslunni í Urðar­hvarfi í leyfi vegna á­sakana. „Býður upp á dá­leiðslu með­fram hefð­bundnum lækningum“

Síðast­liðna daga hafa birst á­sakanir á hendur heimilis­lækni á Heilsu­gæslunni Urðar­hvarfi í lokuðum Face­book-hóp.

Þetta kemur fram í frétt DV en þar segir að læknirinn býður upp á dá­leiðslu með fram hefð­bundnum lækningum og hefur hlotið gott orð­spor fyrir með­höndlun vefjagigtar. Í um­ræðunum er hann sakaður um sér­kenni­lega hegðun, meðal annars að óska eftir tíma­bókunum í gegnum Face­book Mess­en­ger.

Kona sem kemur ekki fram undir nafni og var í með­ferð hjá honum sakar hann um að fengið sig til kyn­lífs­iðkana með sér gegn vilja hennar. Önnur kona sakar hann um ó­eðli­lega hegðun í læknis­heim­sókn til hans. Tekið skal fram að meint brot átti sér ekki stað við störf hjá Heilsu­gæslunni Urðar­hvarfi.

DV sendi fyrir­spurn vegna málsins til Heilsu­gæslunnar Urðar­hvarfi og svaraði Fríður Bjarna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri heilsu­gæslunnar, fyrir­spurninni skrif­lega:

„Heilsu­gæslan Urðar­hvarfi var upp­lýst um nafn­lausa á­sökun á sam­fé­lags­miðlum um starfs­mann stöðvarinnar. Um­ræddur starfs­maður hafnar þessari á­sökun, en óskaði eftir því að fara í leyfi frá störfum þar til mál skýrast frekar.“