Læknar ósáttir við auglýsingu: „Með því hallærislegra sem ég hef séð lengi“

„Veit ekki með ykkur en í ljósi samhengis auglýsingarinnar finnst mér hún með því hallærislegra sem ég hef séð lengi,“ segir Teitur Guðmundsson, læknir og framkvæmdastjóri Heilsuverndar, í færslu á Facebook-síðu sinni.

Auglýsingin sem Teitur gagnrýnir er frá Þykkvabæjar en þar er verið að auglýsa tilbúna eldaða rétti sem þarf aðeins að hita. Það sem vekur athygli er að á mynd við auglýsinguna má augljóslega sjá heilbrigðisstarfsmann gæða sér á réttinum. Og fyrir neðan myndina stendur: „Réttur þeirra sem eru að flýta sér.“

Gríðarlegt álag hefur verið á heilbrigðisstarfsfólk að undanförnu og hafa starfsmenn Landspítalans kvartað sáran undan gríðarlegu álagi. Ástandið hefur verið viðvarandi lengi og hefur kórónuveirufaraldurinn aðeins gert slæma stöðu verri. Hefur heilbrigðisstarfsfólk talað um að það sé á hlaupum allan liðlangan daginn.

Teitur segir að mikil þversögn felist í auglýsingunni. „Og læknar líklega hvorki hrifnir af tengingunni að þeir séu að flýta sér né að borða á hlaupum þó vissulega neyðist þeir stundum til þess með óbragð í munni.“

Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir og fyrrverandi umsjónarmaður Covid-göngudeildar Landspítalans, deilir færslu Teits og segir: „Smekklegt? Ekki viss!“