Læknar drottningarinnar á­hyggju­fullir: „Mögu­lega eitt­hvað al­var­­legt á ferðinni“

Richard Sumner, fyrr­verandi frétta­­ritari BBC í mál­efnum konungs­fjöl­­skyldunnar, segir að yfir­­­lýsing bresku konungs­hallarinnar um veikindi drottningarinnar, þar sem fram kom að læknar hefðu á­hyggjur af heilsu hennar, sé til merkis um það að veikindin kunni að vera al­var­­leg.

„Þegar þú ert 96 ára býst enginn við því að þú sért með líkama eins og 25 ára manneskja. Vonandi er þetta eitt­hvað sem hún mun yfir­­­stíga en ég held, miðað við yfir­­­lýsinguna í morgun, að eitt­hvað al­var­­legt sé mögu­­lega á ferðinni,“ segir Richard.

Sam­kvæmt Richard er venjan hjá konungs­fjöl­­skyldunni sé að draga frekar úr yfir­­­lýsingum en bæta í þegar veikindi eru annars vegar. Elísa­bet sé enn skýr í hugsun, mjög á­huga­­söm um mál­efni líðandi stundar en líkam­­leg heilsa ekki eins og best verður á kosið.

Fregnir af veikindum Elísa­betar Bret­lands­­drottningar eru fyrir­­­ferðar­­miklar á breskum frétta­­miðlum þessa stundina. Fjöl­margir hafa sent drottningunni hlýja strauma eftir að greint var frá veikindum hennar en hún dvelur nú í Balmor­al-kastala.

Liz Truss, nýr for­­sætis­ráð­herra Bret­lands, sagði að breska þjóðin væri á­hyggju­full vegna fréttanna. „Hugur minn – og al­­mennings í Bret­landi – er hjá drottningunni og fjöl­­skyldu hennar þessa stundina.“

nánir að­stand­endur Elísa­betar Bret­lands­­drottningar eru á leið til Balmor­al kastala. Frá þessu er greint á vef BBC sem er með beina frétta­­lýsingu vegna til­­­kynningar um veikindi hennar.

Greint hefur verið frá því að Karl Breta­prins, Vil­hjálmur Breta­prins og her­­toga­hjónin Harry og Meg­han séu á leið til kastalans. Áður hefur komið fram að læknar drottningarinnar séu á­hyggju­fullir yfir nú­verandi á­standi hennar.

Þá eru hin börnin hennar og syst­kini Karls, Anna, Andrés og Ját­varður einnig á leið til drottningarinnar. Þá greinir BBC frá því að Katrín Midd­let­on muni ekki fara til Balmor­al kastala, heldur muni hún halda sig í Windsor kastala Í Lundúnum þar sem um er að ræða fyrsta skóla­­dag barna þeirra.

Balmor­al kastali er í Skot­landi og hefur verið að­­setur bresku konungs­fjöl­­skyldunnar í um 150 ár. Hann er í Aber­deen­skíri.