Staðan á Landspítala vegna Covid-19 faraldursins er svo þung að það er „algjörlega óábyrgt að ætla að aflétta öllum takmörkunum vegna Covid hér á landi.“
Þetta segir Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir, sem einnig er þekktur sem Lækna-Tómas, á Facebook.
Ástandið sé afar erfitt, í síðustu viku hafi nánast engar hjarta- og lungnaaðgerðir farið fram á spítalanum vegna smits sem barst á legudeildina þar sem bæði sjúklingar og starfsfólk smituðust.
„Við þessar aðstæður er algjörlega óábyrgt að ætla að aflétta öllum takmörkunum vegna Covid hér á landi. Til þess er Landspítali, höfuðfley íslenska heilbrigðiskerfisins, enn of lekt. Sá leki verður ekki bættur yfir nótt – og því miður tilfinningin að lítið sé í gangi – með ríkisstjórnarkapal í hægagangi. Ábyrgðin á stöðu LSH er stjórnvalda - sem um áratuga skeið hafa skammtað alltof naumt til þeirra verkefna sem ætlast er til af spítalanum. Covid hefur síðan bara þyngt róðurinn – og gert lekann augljósari.“