Skurðlæknirinn Tómas Guðbjartsson, betur þekktur sem Lækna-Tómas, deilir grein eftir „prófessorskollega“ sinn Magnús Karl Magnússon á facebook í dag þar sem síðarnefndi lætur þingmenn heyra það fyrir ummæli sín um sóttvarnaraðgerðir.
Tómas er sammála vini sínum og segir hann með klárari mönnum sem hann þekkir. „Hér sendir hann skýr skilaboð til vissra þingmanna og ráðherra sem bókstaflega neita að styðjast við vísindaleg rök og grípa í staðinn til klysja. Þessir sömu ráðast síðan á þann sem er að reyna að sigla okkur út úr þeim ógöngum sem við erum í - en nota bene sömuleiðis öll heimsbyggðin,“ skrifar Tómas um pistill Magnúsar.
„Alls staðar í heiminum er jú beitt nánast sömu aðferðafræði og hérlendis nema hvað sóttvarnaraðgerðir eru víða umtalsvert harðari en hér. Nýjasta útspilið hjá einum ráðherranna er að frelsi barna sé fótum troðið með nauðsynlegum sóttvörnum. Varaþingmaður í sama flokki fer síðan ítrkað með ósannindi og ber út falsfréttir,“ bætir hann við.
„Börn eru ótrúlega þolin og sterk og oft skynsamari en fullorðnir. Þótt Magnús beini spjótum sínum að XD þá er efasemdarfólk mun víðar - og ég tek fram af báðum kynjum. Skora á ykkur að lesa,“ skrifar Tómas að lokum áður en hann deilir pistilnum hans Magnúsar.