Lækna-Tómas ósáttur með Margréti Frið­riks: „Fall­hlífar­stökk án fall­hlífar er dauðans al­vara“

Skurð­læknirinn Tómas Guð­bjarts­son skrifar um bólu­setningar á Face­book síðu sinni og deilir þar skjá­skoti af frétt um að Margrét Frið­riksdóttir sé komin í al­þjóða­rann­sókn óbólu­settra.

„Fall­hlífar­stökk án fall­hlífar er dauðans al­vara,“ skrifar Tómas á Face­book síðu sinni.

„Það er ó­trú­legt að sjá ungt fólk taka þátt í bullrann­sókn þar sem bera á saman veikindi bólu­settra og óbólu­settra við Co­vid-19. Niður­staðan er á­líka aug­ljós og ef borið væri saman hvort fall­hlífar fyrir­byggi dauða eða ekki þegar stokkið er út úr flug­vél í mikilli hæð. Reyndar hefur aldrei verið gerð slem­buð saman­burðar­rann­sókn á nota­gildi fall­hlífa til að fyrir­byggja dauða við fall­hlífa­stökk - enda erfitt að finna fólk í saman­burðar­hóp,“ bætir hann við.

Tómas segir að sumir óbólu­settir viðrast hins vegar lmeja hausnum við steininn og bjóða sig fram í ein­hvers knara harakiri; Til­raun þar sem þeir stofan ekki að­eins eigin heilsu í voða – heldur einnig vel­ferð annarra.

„Ó­líkt fall­hlífum, liggja hins vegar fyrir mjög vandaðar rann­sóknir á já­kvæðum á­hrifum bólu­setninga við Co­vid-19. Því miður hlakka ég ekki til að sjá niður­stöðuna úr þessu fall­hlífausa fall­hlífa­stökki,“ skrifar Tómas.