Eliza Reid, forsetafrú Íslands, tilkynnti rétt í þessu um breytingar á orðuböndum fyrir riddarakross og stórriddarakross.
„Orðan sjálf hefur vissulega verið eins að stærð og lögun fyrir öll þau sem sæmd eru, en hins vegar hefur alltaf verið gerður greinarmunur á orðuböndum karla og kvenna. Ekki lengur,“ skrifar Eliza Reid sem deildi síðan mynd af orðuböndunum tveimur.
„Ég fagna þessari breytingu,“ skrifar Eliza.
Hægt er að sjá orðaböndin í færslunni hér að neðan.