Kynjafræðingarnir Gyða Margrét Pétursdóttir og Þórður Kristinsson svara ummælum Begga Ólafs, hlaðvarpsstjörnu og fyrirlesara, í löngu viðtali við Fréttablaðið í dag sem lesa má á vef blaðsins.
„Þetta er auðvitað stutt TikTok myndskeið og erfitt að koma flóknum hugmyndum frá sér í stuttu máli. Þarna er talað um karlmennsku sem eitthvað eitt, fast fyrirbæri en við tölum yfirleitt um karlmennskuhugmyndir í dag sem geta verið ansi margar og ólíkar,“ segir Þórður Kristinsson við Fréttablaðið.
Gyða Margrét segir kynjafræðina snúast um að afbyggja skaðlegar karlmennskuhugmyndir sem Beggi geri út á, líkt og þá að karlar eigi að vera skaffarar.
„Þessar hugmyndir hafa einmitt gert það að verkum að karlar eru síður í því hlutverki og hafa minni möguleika en til dæmis konur á að rækta samband við börnin sín af því að þeir eru hlaðnir þessum klafa fyrirvinnuhlutverksins sem birtist síðan í því að karlar taka styttra fæðingaorlof en konur og sinna minna börnum og öðru því sem fylgir því að halda heimili.“
Viðtalið við kynjafræðingana á vef Fréttablaðsins í heild sinni.