Kvika banki mun ganga frá kaupunum á verðbréfafyrirtækinu GAMMA í samræmi við kaupsamning eftir að öll skilyrði fyrir kaupunum voru uppfyllt. Kvika mun eignast 96,1 prósent hlutafjár í GAMMA á þessu stigi. Samkeppniseftirlitið heimilaði kaupin í gær. RÚV.is greinir frá.
Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að einn seljandi, sem er eigandi að 3,85 prósent hlutafjár, hafi undirritað kaupsamninginn með fyrirvara sem hann hafi ekki aflétt og því er eignarhlutur Kviku í GAMMA 96,1 prósent að sinni.
ÍtilkynningufráSamkeppniseftirlitinu vegna ákvörðunarinnar segir að samruninn taki nær eingöngu til eignastýringar, þar sem umsvif GAMMA á öðrum sviðum fjármálaþjónustu, sem Kvika býður einnig upp á, séu afar lítil. Niðurstaða eftirlitsins, að undangenginni rannsókn, er sú að ekki séu fyrir hendi vísbendingar um að samruninn leiði til myndunar eða styrkingar markaðsráðandi stöðu samrunaaðila á neinum markaði. Jafnframt verði ekki séð að samkeppni á mörkuðum raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti.