Kvenritstjórar kryfja fréttamálin

Þeim er ekki orðavant, kvenritstjórunum sem mæta í Ritstjórapart fréttaþáttarins 21 á Hringbraut í kvöld en þar setjast á rökstóla þær Steingerður Steinarsdóttir og Tobba Marinós, sem stýra Vikunni og DV.

Umræðuefnin eru af öllu tagi, fjárhagsógöngur einkarekinna fjölmiðla sem birtast nú síðast í fjöldauppsögnum hjá Birtingi, útgáfufélagi Vikunnar, umhyggjuhagkerfið sem einhverjir segja að hafi bjargað þjóðinni út úr kófinu, altso kvenlega innsæið stjórnsýslunni, opnun landamæranna, átökin í Bandaríkjunum – og hér heima, á milli kaupmanna í miðborginni og meirihlutans í Ráðhúsinu.