Kveðjum rignir yfir Egil sem opnar sig um veikindin: „Þú ert enginn minnipokamaður“

Kveðjunum rignir yfir Egil Ólafsson sem tilkynnti í gær að hann væri með Parkinson og gæti ekki sungið á afmælistónleikum Stuðmanna í Hörpu.

Söngvarinn tjáir sig um málið á Facebook síðu sinni og þakkar skilninginn.

„Eins og mörg ykkar vissuð, hef ég verið að kljást við Parkinssons veiki síðustu misseri. Þrátt fyrir það söng ég á sviði Hörpunnar, með mínum gömlu félögum í Stuðmönnum fyrir ári síðan - og það slapp fyrir horn. Núna, ári síðar, gengur það því miður ekki, ég get einfaldlega ekki stólað á röddina lengur - það er staðreynd sem ég verð að horfast í augu við.

Egill segir sárt að geta ekki staðið undir væntingum og þurfa að bregðast sínum gömlu félögum og tónleikagestum. „En stundum er nauðsynlegt að láta í minni pokann, þó ég ætli mér ekki að vera minnipokamaður,“ skrifar Egill.

„Um leið og ég þakka ykkur skilning og stuðning og biðst velvirðingar, vil ég að það komi skýrt fram að sköpunargleðiganga mín heldur áfram og það þótt heilinn sé orðinn spar á ýmis gleðihormón,“ skrifar Egill.

„Í vor náði ég að syngja inn á nýja tvöfalda plötu með músík eftir mig, "tu duende / el duende". Þar naut ég fulltingis kúbversku söngkonunnar Lissy Hernández og Ellenar Kristjánsdóttur. Þeir sem hafa forkeypt þá plötu fá hana afhenta nú í nóvember, annars er útgáfudagurinn 9. febrúar.“

Þá segir Egill að innan skamms komi út ljóðabók um föður hans, sem oft hafi verið nefndur „Sjófuglinn.“ „Og áfram heldur sköpunargleðiganga mín - vonandi sem lengst.“

Stuðningur mikill við Egil

Egill hefur fengið 300 ummæli undir færsluna og 1000 manns hafa brugðist við henni.

„Þú ert enginn minnipokamaður heldur ertu hetja og hefur alltaf staðið undir væntingum og miklu meir en það,“ skrifar einn lesenda.

„Óska þér alls hins besta kæri vinur. Veit af eigin raun hvernig það er að standa frammi fyrir því sem maður getur ekki breytt. Þú hefur veitt mér ótal ánægjustundir allt frá fyrsta Stuðmannaballinu! Takk!“

„Kæri Egill, þekki þig ekki persónulega en langar samt að segja að röddin þín er einstök- falleg, full af karakter og litbrigðum og stjórnað af mikill i vandvirkni og valdi. Takk allt sem þú hefur gefið af þér...og það sem koma mun.“