Kvarta undan því að brauðið mygli fyrir síðasta sölu­dag – Myllan skoðar málið

Borið hefur á því að brauð frá Myllunni spillist fyrir best fyrir dag­setninguna. Um­ræða um þetta hefur farið fram í Face­book-hópnum Matar­tips en þar segir tals­maður Myllunnar að málið sé til skoðunar innan fyrir­tækisins.

Kona sem hóf um­ræðuna í gær­kvöldi sagði að eigin­maður hennar hefði komið heim með nýtt Heimilis­brauð daginn áður. Í gær, þegar hún ætlaði að fá sér brauð, hefðu verið komnir myglu­blettir í það. Kvaðst konan hafa lent í þessu áður þó brauðið væri ekki komið á dag­setningu.

Fleiri tóku undir með konunni í þræðinum og sögðust hafa lent í sam­bæri­legri upp­á­komu. „Held það sé eitt­hvað í gangi þar. Keypti brauð frá Myllunni í síðustu viku og það átti 3 daga þangað til það rann út en það var nánast allar brauð­sneiðarnar grænar,“ segir einn. Þá tala sumir um öðru­vísi á­ferð eða bragð.

Al­manna­tengillinn Ingvar Örn Ingvars­son svarar fyrir hönd Myllunnar í þræðinum og segir hann að málið sé til skoðunar innan fyrir­tækisins.

„Það er rétt sem fólk er að upp­lifa hér, að það hefur komið fyrir að brauð spillist fyrir best fyrir dag­setninguna. Eins og er liggur ekki fyrir hvað veldur, en við erum að rann­saka þetta með því að skoða hrá­efnin og aðra þætti. Það liggur ekki fyrir hvort það er ein­hver munur á hveiti eða geri, á ekki að vera það - en við erum að rann­saka það líka enda hafa ein­hver ykkar talað um öðru­vísi á­ferð eða bragð,“ segir Ingvar.

„Í öllu falli erum við þakk­lát fyrir að þið látið okkur vita, t.d. með því að senda mér upp­lýsingar hér á Matar­tips! sem væri kær­komið. Okkur þykir að sjálf­sögðu leitt ef þið fáið brauð sem endast ekki fram að best fyrir dag­setningunni.“

Ingvar segir að Myllan hafi brugðist við með því að stytta best fyrir stimpilinn um einn dag. Þá sé lögð á­hersla á að brauðin séu ferskvara og forðast sé að nota rot­varnar­efni eins og hægt er. Því sé eðli­legt að brauð mygli eftir ein­hvern tíma.

„En það á að endast fram að best fyrir dag­setningunni og gerir það nema í undan­tekningar­til­fellum sem við erum að reyna að finna út úr. Ef þið lendið í þessu, endi­lega látið okkur vita því það hjálpar okkur að rekja á­stæðurnar - og það hjálpar okkur líka að bæta ykkur upp það að hafa fengið brauð sem spilltist of snemma. Enn og aftur, okkur þykir leitt ef þetta veldur von­brigðum. Við vinnum alla daga að því að gera betur.“