Kvarta undan hræði­legri að­stöðu í Reykja­vík: Fötin á gólfinu, vaskurinn bilaður og tveir saman í litlu herbergi

„Enn eina ferðina er Út­lendinga­stofnun að brjóta gegn grund­vallar­mann­réttindum og um leið að setja heilsu okkar og öryggi í hættu,“ segir í mynd­bandi sem birtist á Face­book-síðunni Refu­gees in Iceland í gær.

Í færslu sem birtist sam­hliða mynd­bandinu kemur fram að hluti þeirra sem dvalið hafa á Ás­brú að undan­förnu hafi verið fluttir til Reykja­víkur. „Undir venju­legum kring­um­stæðum myndum við fagna því að búa í um­hverfi þar sem ein­angrunin er ekki jafn mikil og áður,“ segir á Face­book-síðunni en því bætt við að yfir litlu sé að fagna.

„Að­stæðurnar hér í Reykja­vík (Grens­ás) eru hræði­legar. Það eru að minnsta kosti tveir í nánast hverju einasta her­bergi og í sumum her­bergjum eru 4-5 ein­staklingar. Það er ekki tekið með í reikninginn að sumir eru haldnir krónískum veikindum og eru í á­hættu­hópi þegar kemur að CO­VID-19.“

Í mynd­bandinu er veitt inn­sýn í hvernig staðan er í einu af her­bergjum hússins. Um er að ræða lítið her­bergi þar sem finna má koju, eld­hús­vask og elda­vél. Vaskurinn virðist ekki virka og þá er það gagn­rýnt að í­búar her­bergisins geti ekki gengið frá fötunum sínum, til dæmis inn í fata­skáp, á stól eða í kommóðu. Þá er það gagn­rýnt að engin loft­ræsting sé fyrir ofan elda­vélina eins og oftast tíðkast.

Í færslunni sem fylgir með kemur fram að 32 ein­staklingar þurfi að deila með sér tveimur hrein­lætis­að­stöðum.

„Þetta er klárt brot á mann­réttindum og gengur gegn því sem ís­lensk lög gera ráð fyrir. Þar er kveðið á um að að há­marki tíu ein­staklingar skuli vera um hverja hrein­lætis­að­stöðu. Það vita það allir að góð hrein­lætis­að­staða er einn af veiga­mestu þáttunum þegar kemur að því að hindra út­breiðslu CO­VID-19. Þó að Út­lendinga­stofnun myndi tryggja það að ekki fleiri en 10 væru um hverja að­stöðu mætti spyrja sig hvers vegna reglurnar eru ekki enn strangari á þessum tímum.“

Mynd­bandið má sjá hér að neðan.