Gunnar Smári Egilsson Sósíalistaforingi setur stórt spurningarmerki í færslu á Facebook-síðu Sósíalistaflokksins við þær gríðarlega háu fjárhæðir sem íslenskir foreldrar þurfa að borga í tannréttingakostnað barna sinna. Fátækir foreldrar neyðast til að sleppa slíkum aðgerðum.
Gunnar Smári rakst á félaga sinn úti á götu sem greindi frá raunum sínum: „Þegar ég var að labba upp í Bolholt til að taka upp Rauða borðið hitti ég kunningja minn og dóttur hans á röltinu. Hann var eins og sleginn út af laginu,“ segir Gunnar Smári.
Tannlæknameðferð dóttur hans kostar hátt í tvær milljónir: „Hann hafði orðið fyrir áfalli í tíma hjá tannréttingarsérfræðing sem tjáði honum að reiknað væri með að meðferð fyrir dóttur hans kostaði eina og hálfa milljón,“ segir Gunnar Smári enn fremur.
Fátækir foreldrar barna sem þurfa á slíkri meðferð að halda eiga engra annarra kosta völ en að sleppa þessu: „Hann sagðist hafa spurt fræðinginn hvað fátækir foreldrar gerðu? Ekkert, þeir koma ekki hingað.“
Styrkur frá Sjúkratryggingum nemur ekki nema tíu prósentum af heildarkostnaði meðferðarinnar, jafnvel minna: „Það er hægt að fá styrk frá Sjúkratryggingum upp á 150 þús. kr. en þá standa eftir 1.350 þús. kr. sem fólk ræður ekki við,“ segir Gunnar Smári.
Skilaboðin eru því einföld: „Börn fátækra foreldra fá ekki tannréttingar.“
Gunnar Smári greinir því næst frá því að hann hafi fengið frekari upplýsingar frá áðurnefndum kunningja sínum: „Þegar kunningi minn var kominn heim sendi hann mér sms, sagðist hafa kannað hvernig þetta væri í Svíþjóð. Þar kosta tannréttingar barna ekki neitt. Tannréttingar fyrir fullorðna kosta 200 þús. kr.“
Hann heldur áfram: „Hvers vegna látum við bjóða okkur þetta? Höldum við að Íslendingar eigi allt vont skilið?“ segir Gunnar Smári.
Ýmsir meðlimir Sósíalistaflokksins taka undir með Gunnari og kannast við kostnaðinn sem þessum meðferðum fylgir. Sumir hafa gengið svo langt að sækja sambærilegar meðferðir út fyrir landsteinana, til dæmis Ungverjalands og Póllands.
Þar segir Bjarni nokkur: „Var sjálfur í tannréttingum og kostnaðurinn var ekki mikið minni! Þekki marga sem fara bara til Gdansk þegar þeir þurfa að fara til tannsa vegna lægri kostnaðar og betri þjónustu.“
Óskar nokkur greinir frá því að slíkar meðferðir hafi eitt sinn verið nær gjaldfrjálsar: „Tannrettingar barna voru lengi vel niðurgreiddar hér upp að 75%. Man ekki hvenær það breyttist og hver breytti þvi en svona var þetta.“
Tóta nokkur segir tannréttingar hafa verið algjörlega gjaldfrjálsar fyrir nokkrum áratugum síðan: „Tannréttingar voru ókeypis fyrir börn og unglinga í byrjun, til c.a 1982, síðasta árið sem ég var í tannréttingum kostaði en ekki í upphafi meðferðar. svo voru skólatannlæknar í öllum skólum í borginni, allt ókeypis.“
Þórbergur nokkur Torfason svarar Óskari og er með svarið á reiðum höndum: „Það breyttist margt þegar Sighvatur frændi minn var heilbrigðisráðherra og þar í kring.“ Það sem breyttist hafi verið komugjöld og fleiri slík gjöld.
Þá kemur Helga nokkur með reynslusögu: „Drengurinn minn 16 ára er að ljúka þessu ferli. Við foreldrarnir erum búin að borga c.a. 25.000 kr í hverjum mánuði síðan hann var 13. ára. En við vorum kvödd með 140.000 kr reikning sem við fengum náðarsamlegast að skipta í tvennt, 1.des og 1.jan. Það verður meira lagt upp úr stemningu en efnislegu flippi þessi jólin.“
Þá kveðst Jens einn hafa borgað rúmlega milljón fyrir ellefu ára dóttur sína fyrir tíu árum síðan.
Jökull nokkur Steinarsson býr í sjálfur í Svíþjóð og greinir frá upplifun sinni: „Bý í Svíþjóð og get staðfest að tannlækningar og tannréttingar eru ókeypis til 24 ára aldurs... dóttir mín þurfti á meðferð í tannréttingum sem kostaði mig ekkert aukalega s.s. að fullu fjármagnað af skattpeningum. Svo má náttúrulega líka nefna að einstaklingar yfir 24 ára eru varðir fyrir tannlæka kostnaði sem fer yfir ca 50 þús/ár.“