KSÍ segir hingað og ekki lengra: „Þetta verðum við að stöðva“

Undanfarnar vikur hafa borist fréttir og frásagnir af miður fallegri framkomu í garð knattspyrnudómara hér á landi. Stjórn KSÍ hefur af því tilefni sent öllum aðildarfélögum ákall þar sem hvatt er til þess að tekið sé á þessum málum.

„Áreiti og ógnandi tilburðir hafa sést í leikjum og eftir leiki. Dómurum hefur verið hótað vegna ákvarðana þeirra, og það hefur jafnvel gerst að hótanir berist fjölskyldu dómara eftir leik! Nú er mál að linni. Þetta verðum við að stöðva og við þurfum að gera það í sameiningu,“ segir í ákalli KSÍ til aðildarfélaga sambandsins.

„Víða er það þannig að starfsaðstaða dómara, búningsklefar og önnur aðstaða, er ekki boðleg . Því miður gerist það að gæslumenn, sem eiga að gæta öryggis dómara í leikjum, misnoti aðstöðu sína og nálægð við dómarana og hreyti ónotum í þá, vegna ákvörðunar í leiknum sem viðkomandi mislíkaði. Það sama á við um marga aðra starfsmenn félaga og leikja. Þetta er ekki í lagi hjá okkur,“ segir enn fremur.

Þá er minnt á að verið sé að reyna að byggja upp knattspyrnuna í landinu og stöðug neikvæðni og niðurrif í garð dómara – svo ekki sé minnst á ógnandi hegðun – hjálpi ekki á þeirri vegferð.

„Dómarar eru ómissandi hluti af leiknum og við einfaldlega verðum að fara að sýna þeirra störfum meiri virðingu, tillitssemi og ekki síst þakklæti. Dómurum verða á mistök eins og leikmönnum en þeir hafa ástríðu fyrir fótboltanum eins og við öll og eiga betra skilið.“

Bent er á að dómararnir komi úr félögunum alveg eins og leikmennirnir. Aðildarfélög geti ekki látið eins og dómgæsla komi þeim ekki við og það sé bara mál KSÍ að búa til og skaffa dómara á leiki.

„Hér verða félögin mörg hver að gera mun betur, koma upp hópi dómara, búa þeim umgjörð sem sómi er að og gera það eftirsóknarvert að koma og starfa við dómgæslu fyrir félögin, sem sum hver standa sig virkilega vel í þessu, en þau eru of fá. Hér verða forráðamenn margra félaga að gera betur og byggja dómgæsluna okkar upp. Orð og gjörðir leikmanna, þjálfara og annarra fulltrúa félaganna hafa áhrif á aðra. Þetta einfaldlega verður að breytast og við í sameiningu verðum að skapa jákvæðara umhverfi fyrir dómgæslu og fótboltann í landinu.“