KSÍ fær sér­stakt vín­veitingar­leyfi fyrir vestan – bjór­dælurnar opna ein­stak­lega snemma

Hótel Ísa­fjörður fékk heimild til að selja á­fengi á árs­þingi KSÍ sem fer fram í í­þrótta­húsinu í Torfs­nesi um helgina. Bjór­dælurnar opna klukkan ellefu að há­degi og standa opnar fram eftir mið­nætti. Þetta kemur fram í frétt Frétta­blaðsins.

Um­sókn um tíma­bundið á­fengis­leyfi vegna þingsins var tekin fyrir á nýjasta fundi bæjar­ráðs Ísa­fjarðar­bæjar og gerði bæjar­ráð engar at­huga­semdir við hana.

Kvöld­verður stendur yfir frá 20.00 fram eftir mið­nætti og er á­fengis­leyfið gilt til 01.00 um nóttina á sunnu­daginn.