Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta, staðfesti í viðtali á Útvarpi Sögu í dag að Knattspyrnusamband Íslands hafi afhent Stígamótum nafnalista með liðsmönnum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Var það gert í þeim tilgangi að fá upplýsingar hvort ofbeldissögur af mönnunum hefðu komið inn á borð til þeirra.
Í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur sagði Steinunn að hún og vinkona hennar hafi farið á fund með fólki sem sat í stjórn KSí. Þá höfðu nýlega tveir landsliðsmenn dottið úr nýtilkynntum landsliðshópnum vegna ásakana um ofbeldisbrot; annar sagði sig sjálfviljugur úr honum en hinum hafði verið hent út gegn sínum vilja.
Steinunn segir við Arnþrúði að stjórnarmeðlimirnir hafi afhent þeim stöllum listann og spurt hvort þær vissu um einhverja aðra sem hefðu beitt ofbeldi eða hvort sögur hafi verið um að aðrir hafi beitt ofbeldi. Þær renndu yfir listann en sáu enga þar sem þær vissu að hefðu orðið uppvísir að slíkum brotum.
Arnþrúður spurði Steinunni jafnframt út í greiðslu Kolbeins Sigþórssonar, framherja íslenska landsliðsins, til Stígamóta í kjölfar samkomulags hans og Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur sem sakaði hann um að beita sig ofbeldi á skemmtistaðnum B5. Steinunn sagði að greiðslan hafi verið hluti af „réttlætissamkomulagi þeirra á milli.“
Jafnframt sagði hún að hún hafi talið að hugmyndin að því að greiða fjáræðina til Stígamóta hafi verið til þess að „undirstrika hversu alvarlegt þetta var.“