Hækkun olíverðs og kostnaður af íslensku krónunni eru helstu áhrifavaldar 2,7 milljarða taps hjá Icelandair á öðrum ársfjórðungi þessa árs.
“Stærsti kostnaðarliður Icelandair er laun. Þau eru greidd í krónum en bandaríkjadollari er uppgjörsmynt félagsins.” Sagði Björgólfur Jóhannsson í viðtali við Vísi.is.
Afkoma félagsins var lakari en ráð hafði verið gert fyrir, en félagið reiknar með að með 2-2,5% lækkun á gengi krónunnar á næstu mánuðum og að sú lækkun gæti stuðlað að bættum rekstrargrundvelli félagsins.
Þar fyrir utan mun Icelandair grípa til margháttaðra aðgerða til að bæta rekstur félagsins, en eins og fram hefur komið er félagið með hærra hlutfall launa en flestir samkeppnisaðilar þess.